RIFF 2010: The Edge

Posted in Gagnrýni on 29/09/2010 by Ingólfur Halldórsson

Á síðustu RIFF hátíð skellti ég mér á þriggja klukkutíma langa rússneska mynd um munaðarleysingja.  Ég ímyndaði mér að annað hvort yrði þetta besta mynd hátíðarinnar eða átakanlega leiðinlegt rusl.  Því miður tók ég áhættuna og endaði á að yfirgefa salinn eftir um það bil hálftíma þar sem leiðindin voru alveg hreint ótrúleg.  Ég vil ekki segja að þessi upplifun hafi haft áhrif á viðhorf mitt gagnvart rússneskum kvikmyndum, en ég er vissulega varari um mig þegar kemur að löngum stórmyndum frá gömlu Sovétríkjunum.  Lýsingin á The Edge úr RIFF bæklingnum hljómaði hins vegar allt of vel til að ég gæti réttlætt það fyrir mér að sjá hana ekki, og skellti ég mér þess vegna á hana í gær.  Það er mér mikil gleði að tilkynna að héðan í frá mun ég ekki hafa varann á gagnvart rússneskri kvikmyndagerð. Lesa meira »

RIFF 2010: Stutt umsögn um Womb og Cyrus

Posted in Gagnrýni on 26/09/2010 by Ingólfur Halldórsson

Í gær skellti ég mér á tvær myndir, eina sem ég vissi um það bil hvar ég hafði og aðra sem ég vissi nákvæmlega ekkert um fyrir sýningu.  Báðar reyndust þó vera virkilega skemmtilegar, hvor á sinn hátt, og hér á eftir fylgja stuttar umsagnir um þær báðar, Womb eftir Benedek Fliegauf og Cyrus eftir Jay og Mark Duplass. Lesa meira »

RIFF 2010: Winter’s Bone

Posted in Gagnrýni on 25/09/2010 by Ingólfur Halldórsson

Ohh, RIFF.  Hvað ég hef saknað þín.  Það er fátt sem mér finnst skmmtilegra en að ramba af einni mynd inn á aðra, með einungis takmarkaða yfirborðsþekkingu á myndunum að vopni.  Stundum er maður óheppinn og lendir á vondri mynd, en þegar manni tekst að ganga fullkomlega blindur inn á kvikmynd sem er virkilega góð þá borgar það sig margfalt til baka.  Fyrsta myndin sem ég fór á þetta árið, Winter’s Bone er án vafa dæmi um seinni hópinn. Lesa meira »

Robin Hood

Posted in Gagnrýni on 01/06/2010 by Ingólfur Halldórsson

Þessi gagnrýni er að koma allt of seint hingað inn, sem er einfaldlega vegna þess að ég drullaðist ekki til að sjá þessa blessuðu mynd fyrr en í fyrradag.  Undir eðlilegum kringumstæðum hefði ég verið fyrstur á svæðið að sjá nýja fornaldar-epík frá Ridley Scott en þessi blessaða mynd hefur fengið ansi slæmt umtal frá því hún var frumsýnd á Cannes um daginn.  Ég hefði þó betur hlustað á mitt eigið frábæra innsæi og drullast á myndina sem fyrst því hún er ekki einungis eldhress og hrikalega töff (hvaða mynd sem skartar Russell Crowe í hlutverki þar sem hann fær að myrða menn með risastórum hamri er ekki töff?) heldur einnig stórvel leikin og stórskemmtileg.  Hversu mörg lýsingarorð eru það? Lesa meira »

Guillermo del Toro leikstýrir ekki The Hobbit

Posted in Fréttir on 31/05/2010 by Arnór Gunnarsson

Leikstjórinn Guillermo del Toro mun ekki leikstýra The Hobbit.  Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá leikstjóranum sem birtist á vefsíðunni theonering.net. Lesa meira »

Dennis Hopper er látinn

Posted in Fréttir on 30/05/2010 by Arnór Gunnarsson

Leikarinn og goðsögnin Dennis Hopper er látinn eftir þráláta baráttu við krabbamein. Lesa meira »

James McAvoy í X-Men: First Class

Posted in Fréttir on 29/05/2010 by Arnór Gunnarsson

James McAvoy hefur nælt sér í hlutverk Professor X í myndinni X-Men: First Class, en eins og flestir eflaust muna hefur Xavier hingað til verið leikinn af engum öðrum en Patrick Stewart. Lesa meira »

Prince of Persia: The Sands of Time

Posted in Gagnrýni on 28/05/2010 by Ingólfur Halldórsson

Í hvert einasta skipti sem sumarmyndavertíðin lætur sjá sig þurfa kvikmyndaáhugamenn, sem einhvern áhuga hafa á poppkornsmyndaframleiðslu Hollywood, að búa sig undir tvennt.  Framhöld af stórmyndum fyrri sumra, og upphaf nýrra mynda-sería sem gætu allt eins verið endurgerðir af myndum síðasta árs.  Prince of Persia: The Sands of Time fellur einstaklega vel að síðari flokknum þar sem hún er kunnugleg með endemum.  Fílingurinn allur er rétt eins og maður hefði ímyndað sér, minnir í raun um margt á The Mummy hvað varðar staðsetninguna og tónlist, en utan þess fá fallegir búningar og leikmunir samastað í tölvugerðum stórborgarskotum frá Jerry Bruckheimer.  Þetta á þó við um allar myndir frá konungi poppkornsmyndanna, þannig að spurningin er:  Er Prince eldhresst sumarbíó eða skelfileg hörmung? Lesa meira »

Agora

Posted in Gagnrýni on 27/05/2010 by Ingólfur Halldórsson

Það er ekki oft sem ég verð fyrir raunverulegum og tilfinnanlegum áhrifum við að horfa á bíómynd.  Yfirleitt líður maður í gegnum áhorfið, finnst eitthvað skemmtilegt eða leiðinlegt, og labbar út úr bíóinu með mismargar spurningar sem sitja í manni mislengi á eftir.  Það eru hins vegar einstakar myndir sem ekki einungis kveikja í manni á meðan horft er á heldur keyra svoleiðis upp í manni tilfinningarnar að eftirá getur maður ekki almennilega stjórnað sér.  Eftir að ég horfði á Requiem for a Dream í fyrsta skiptið gat ég ekki annað gert en starað á skjáinn meðan kreditlistinn rúllaði og síðan í tíu mínútur í viðbót.  Þegar ég lauk við fyrsta áhorf á Into the Wild fylltist ég þvílíkri ævintýraþrá að ég settist upp í flugvél til Buenos Aires og lék mér í þrjá mánuði. Agora er ein af þessum myndum, en ég var ekki glaður eftir að ég horfði á hana heldur fylltist ómælanlegri reiði.  En út í hvern var ég eiginlega reiður? Lesa meira »

Trailer fyrir The Killer Inside Me

Posted in Trailer on 27/05/2010 by Ingólfur Halldórsson

The Killer Inside Me vakti mikið umtal á Sundance hátíðinni í fyrra og hefur fengið alveg hreint ágæta dóma frá þeim sem séð hafa.  Hún fjallar um lögreglustjóra í Texas sem reynist ekki vera alveg með öllum mjalla, og glöggir lesendur geta lesið út úr titli myndarinnar hvernig sú brenglun lýsir sér.  Trailerinn eftir hoppið. Lesa meira »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.