Dennis Hopper er látinn

Leikarinn og goðsögnin Dennis Hopper er látinn eftir þráláta baráttu við krabbamein. Hopper, sem fæddist árið 1936, skaust upp á stjörnuhimininn árið 1969 með myndinni Easy Rider sem hann leikstýrði, skrifaði og lék eitt af aðalhlutverkunum í.
Ferill hans var þó ekki dans á rósum því óhóflegt líferni setti strik í reikninginn stóran hluta áttunda áratugarins. Hopper náði sér engu að síður aftur á strik og vann hvern leiksigurinn á fætur öðrum, ber þá helst að minnast frammistöðu hans í Apocalypse Now og Blue Velvet. Það verður samt ekki af honum tekið að hann var vægast sagt mistækur í hlutverkavali og eru ófáar myndir sem eru skilja fólk eftir með spurningarmerki í huga þegar litið er yfir feril hans (Super Mario Bros, Waterworld). Hopper hlotnaðist loks sá heiður að fá stjörnu á Hollywood Walk of Fame 18. mars síðastliðinn að viðstöddum fjölda aðdáenda sinna auk vina á borð við Jack Nicholson, Viggo Mortensen og David Lynch.
Við skulum líta aðeins á þetta myndband hér að neðan til minningar um kappann.
31/05/2010 kl. 00:40
R.I.P.
Horfði á Blue Velvet í dag. Mögnuð leikframmistaða.